... ekki get ég ímyndað mér það.
Dagur með göngutúr um hólana hér í kring, armbeygjum bekkjunum og góðri tónlist. Ein góð kona skrifaði um hvað einveran er stundum góð og þessir morgnar í kyrrðinni eru einmitt þannig. Fjarri öllum skarkala, nema þá einstaka pönklagi eða rokki.
Það er fátt ljúfara en að tylla sér á stein og skima út á sjóinn á ekki neitt sérstakt, með Arthúr andandi á annað hnéð á mér, fullan af gleði. Sól og fuglar.
Elvar ofurkokkur freistaði mín með súkkulaðiköku sem ég að sjálfsögðu neitaði.
Brokkólí er það heillin. Og Leonard Cohen. Mal mal.
Kveðja úr æfingabúðunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Endanlega búin að tapa mér, eða frábært afmælisár?
18.3.2013 | 13:24
Það er ennþá möguleiki að elskuleg systir mín hætti að djöflast í rugbý og komi með í þetta, og við erum einu Íslendingarnir. Við verðum svo sannarlega að vona að við komumst á leiðarenda!
Elsku vinir, vonandi sjáum við sem flesta við endamarkið í Bláa Lóninu 10. ágúst nk. Nudd og freyðivín fyrirfram þegið!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bryggjan í Reykjavík og Beitningarskúrarnir og Bítlarnir
9.3.2013 | 21:26
í fyrradag var góðu kvöldi eytt þar.
Ég sá í blaðinu að þar myndi svokallað band: Bítlabúddarnir spila. Því var haldið á bryggjuna á stað sem heitir Haiti og þar var ágætur vert og ung stúlka sem gáfu okkur að drekka og svo frábært lítið band sem spilaði bítlalög.
Á meðal þeirra var mitt uppáhalds bítlalag.
Takk kæra Heiða í unun og Leó Akureyringur og þið hin. Frábært kvöld með góðu fólki. Elfa og Egill, Frosti, Þorvaldur, - áfram svona spontant, þetta virkaði svo vel.
Bítlakveðjur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Einmana
7.3.2013 | 09:25
Ég ólst upp í litlu þorpi úti á landi og leið vel í samfélaginu. Skólaárin voru notaleg og sérstök, þökk sé meðal annars óhefðbundnum kennsluaðferðum Péturs Þorsteinssonar og fleiri góðra kennara sem þarna voru.
Ég gleymi því seint deginum þegar ég fór til Reykjavíkur og fann tilfinningu frelsis og nýheita og fór í fyrsta sinn í strætóinn til að komast í menntaskólann, og svo þegar ég gekk inn í stofnunina og hlakkaði til að hlakka til þessa nýja kafla. Líklega hafa flestir gengið í gegnum þetta svo það þarf lítið að útskýra.
Ég fór að leita mér að skólastofu og gera það sem gera þurfti og mjög fljóstlega varð ég vör við þessa tilfinningu sem ég gat engan veginn útskýrt. Klárlega ekki gleði eða tilhlökkun. Þegar leið á önnina var hún enn þar. Og ári seinna var hún enn þar.
Og þetta var þessi einmanaleiki.
Innan veggja skólans var ákveðið skipulag og flestir sem þar voru, til heyrðu hópum sem komu saman í skólann og þar sem þarna var ekki bekkjarkerfi, hitti maður fyrir mismunandi fólk í hverri kennslustund. Í fyrsta sinn á ævinni var ég vör við það hversu mikilvægt það var mér að tilheyra hópi og vera partur af samfélagi sem var þéttofið.
Ég gleymi því ekki hvað það var erfitt að ganga inn um dyrnar á hverjum einasta degi, dag eftir dag, og vita, að enginn, ekki ein sála innan veggja skólans, myndi taka eftir því hvort ég mætti þennan daginn eða ekki.
Ekki ein mannvera.
Það var þar til ég hitti samsálu mína frá Kirkjubæjarklaustri sem án efa bjargaði mér frá andlegu dauðsfalli.
Það mun ég skrifa um næst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Að vera útundan
6.3.2013 | 08:46
Ég hitti nýverið tvo einstaklinga sem tjáðu mér að ég hefði beitt þá einelti og margir aðrir einnig. VIðkomandi voru í nokkuð ágætu formi og höfðu til allrar hamingju alist upp án þess að einelti hefði haft mjög alvarlegar afleiðingar, en þetta sat í þeim og þó ég hefði sjálf ekki upplifað það svo að ég hefði verið gerandi þá áttu öll rök og skýringar þeirra fullan rétt á sér og ég varð að samþykkja að ég hafði jú verið ósanngjörn og andstyggileg.
Sem betur fer hefur eineltisumræðan farið af stað og í dag eru fleiri meðvitaðir en áður. Ég vona að mínir krakkar verði hvorki gerendur né þolendur og hef sjálf reynt að hemja mínar óendanlegu hvatir til þess að stríða fólki, því nú geri ég mér grein fyrir því að það er ekki alltaf jafn sjálfsagt að taka slíkri stríðni, sér í lagi ef hún er síendurtekin.
En ég ætlaði nú ekki að skrifa um einelti. Mér bara fannst að ég yrði að segja þetta því ég ætlaði að segja aðeins frá því hvernig er að vera útundan, þ.e. minni eigin upplifun af því. Og það er eitthvað svo lítilvæglegt í samanburði við það að vera beittur einelti að ég eiginlega skammast mín aðeins fyrir að vekja einu sinni máls á því.
En þjóningar eins gera ekki endilega annars neitt minni og það er alveg í lagi að segja frá án þess að vilja meðaumkun fyrir það. Svo að ég mun í næsta bloggi segja frá því hvernig var að vera útundan.
Allir sem ég hef beitt einelti í fortíðinni, beint eða óbeint, ég bið ykkur innilega afsökunar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Gott að ekki fór verr
5.3.2013 | 09:55
Kviknaði í ryksugu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rafmagnslöggan
5.3.2013 | 09:32
Ég las nokkuð góðan pistil í morgun eftir einn ágætan Kolbein Óttarsson sem ég hafi nokkuð viss um að ég hafi haft sem kærasta í 2 daga þegar ég var 10 ára.
Hann talar um hvað okkur er öllum orðið tamt að segja hinum fyrir verkum. Mikið er ég sammála honum og viðurkenni um leið að ég er engu skárri. Á sama tíma, bara við að halda áfram að lesa blaðið þá sér maður að hann hefur alveg rétt fyrir sér. Blaðið er fullt af allskonar reglu - umræðu.
Hvað má segja, hverju má gera grín að, hvernig skulu börn, foreldrar og aldraðir haga sér (hvernig skyldi ástandið vera á Hrafnistu þar sem aldraðir velta líklega um blindfullir, hver um annan) og fleira og fleira.
Það sem var samt brandari dagsins hjá mér var, 3ja daginn í röð, umræðan um rafmagnstæki af vellinum. Á hverri mínútu sem líður, styttist í alvarlegt slys - segir formaður rafiðnaðarsambands Íslands.
Á hverri mínútu! Mér þætti gaman að vita hver þessi gríðarlega hætta er. Nú er ljóst að ameríska þjóðin öll er ekki í meiri hættu en sú íslenska vegna lélegra rafmagnstækja eða hvað? Þarnfa eru á ferðinni tæki sem verið er að keyra á upgefinni spennu eftir sem áður, það er bara búið að spenna niður 230 v í 110. Hver er hættan? Ætlar lekaliðinn ekki að virka eins vel, ef hans er þörf? Eða hvað mun gerast?
Getur verið að okkar venjulegi íslenski hroki alveg að fara með okkur, eða eru kanski hagsmunaárekstar á ferðinni? Er einhver þarna úti sem vill ekki að nokkur hundruð þvottavélar fari ódýrar inn á neytendamarkaðinn?
Er það raunverulega ólöglegt?
Stundum finnst við svo kjánleg, þessi þjóð. Við erum í miðri kreppu og fólk á ekki fyrir mat. Hendum samt þúsundum rafmagnstækja því þau eru ekki rétt merkt.
Nú er ég með glænýja ameríska hrærivél hér inni í búri hjá mér sem ég kippti með mér frá Hong Kong. Hún er með þessum fína spenni sem ég tengdi hana í og virkar þrusuvel. En eftir lestur blaðsins glamra í mér tennurnar af skelfingu, fyrst og fremst náttúrulega því ég er hrædd um að fá raflost og innri líffæri fari í verkfall, svo er það náttúrulega minnisleysið sem ég má búast við á næstunni, eða á næstu mánuðum eða jafnvel árum, en hræddust af öllu er ég við
Rafmagnslögguna!
...skyldu þeir banka upp á á eftir???
aja.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þykkir sokkar og ullarnærföt
3.3.2013 | 13:23
...skyr og rjómi.
og íslenskt sjónvarp.
Ó.
Stormur í kvöld og á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mín heitasta ósk í morgun
19.2.2013 | 14:31
var að heyra í hrossagauk.
Hvað skyldi það vera á morgun?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Að vera að fara að
18.2.2013 | 07:15
Það er mikill kostur hjá fólki þegar það kemur sér að verki. Hver man ekki eftir því að baka upp á hjá vinum sínum 6 ára vilja fara út að leika sér og sumir vinanna tóku óratíma bara að koma sér í fötin og út - á meðan aðrir voru komnir út á fótboltavöll 3 mínútum seinna.
Ég þoli ekki þegar fólk er "að fara". Þetta hangs í kringum allt.
Farið eða komið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)